Sumarið líður svo hratt!
Það er nokkuð búið að gerast uppá síðkastið í lífi Hildar. Ég skellti mér til dæmis uppá Hvannadalshnjúk með stelpunum úr vinnuni og tók það okkur ekki nema 12 og hálfan tíma að fara upp og niður. Svo stolt af okkur. Var reyndar farin að efast um að ég myndi ná að komast á leiðarenda..............úff erfiðasti parturinn var að koma sér niður.
Nokkrar myndir úr ferðinni :) Vorum voða heppin með veður þar til að við vorum alveg að komast uppá toppinn þá gerði hríð... en við bara fengum að prófa allskyns verðurfar í staðinn.
Svo er maður búin að skella sér nokkrum sinnum á tjúttið............ samt lítið miðað við áður. Segir þetta manni að maður sé orðinn gamall eða?? Hmmmmmm. Er ekki alveg að kaupa það.
Ég er farin að halda að ég þjáist af minnisleysi! Man ekki einn skapaðann hlut mínútu lengur. Hvað er það?! Mér er sagt eitthvað og ég sný mér við og þá man ég það ekki.......... frekar slæmt:)
Svo er það bara brúðkaup um helgina og helgina þar á eftir skellir maður sér austur til mo og pa og fer á Bræsluna að sjá Damien Rice. ......... get ekki beðið.
Síðan er það haustið! Jamm mín er sem sagt búin að fá svar og inngöngu í skólann í Svíþjóð.
Þeir tóku sinn tíma í að svara manni............................. ég hef hins vegar ákveðið að ég ætla mér ekki til Sverge heldur ætla ég að læra hérna heima og hlakka ekkert smá til. Ég komst inn í svipað nám hérna heima í HÍ og er eiginlega spenntari fyrir því en að fara út. Þannig að þetta fer bara allt eins og það á að fara. É skelli mér bara síðar út :) Er það ekki bara málið?Nóg í bili frá þeirri sem man ekki neitt.
kv. HH
